Endurgreiðslustefna

Skilmálar


Síðast uppfært: 26.nóvember, 2025


Vörur og sendingarkostnaður

Verð í vefverslun Lasersmiðjunnar eru með inniföldum 24% vsk. Sendingarkostnaður bætist ofaná verð vörunnar áður en greiðsla fer fram. Lasersmiðjan býður uppá að fá vöruna senda með Póstinum og tekur sendingartíminn að jafnaði 2-4 virka daga - mismunandi eftir því hvar þú býrð. 
 

Afhending og Sending

Pöntun er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Við bjóðum upp á afhendingu um allt land og getur afhendingartími verið mismunandi eftir staðsetningu. Lasersmiðjan gefur sér 2-6 virka daga í að afgreiða vörur - fer eftir um hvaða vöru er að ræða. Þær pantanir sem sendar eru með Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins. Lasersmiðjan ber því samkvæmt ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru eftir að Pósturinn fær þær afhendar. 

 

 

Skil og Endurgreiðsla

Viðskiptavinur Lasersmiðjunnar hefur 14 daga skilarétt frá móttöku vörunnar. 
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil - þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Reikningskvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með vöruskilum. Skilaréttur gildir ekki á vöru sem er keypt á útsölu.

 

 

Persónuvernd

Við virðum persónuvernd viðskiptavina okkar og geymum allar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög. Við deilum ekki persónuupplýsingum með þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

Ábyrgð og Ábyrgðartakmarkanir

Við berum ábyrgð á göllum í framleiðslu en berum ekki ábyrgð á skemmdum sem verða vegna rangrar notkunar eða eðlilegs slits. Ef vara er gölluð skal hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er.

 

 

Lög og varnarþing

Samingur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.


Samskipti

Fyrir frekari upplýsingar eða fyrirspurnir vinsamlega hafðu samband við okkur símleiðis eða sendu okkur tölvupóst á lasersmidjan@lasersmidjan.is eða hér á heimasíðu okkar.


Takk fyrir að versla við Lasersmiðjuna.